Fótbolti

Fabregas skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas fagnar hér marki sínu.
Cesc Fabregas fagnar hér marki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona vann 5-0 sigur á Napoli í leik liðanna í árlegum leik um Joan Gamper bikarinn í kvöld en þetta var í 46. sinn sem Barcelona byrjar tímabilið á því að spila á þessu æfingamóti sem ávallt fer fram á Nývangi. Barcelona fór þarna illa með ítalska liðið en bæði liðin spila í Meistaradeildinni í vetur.

Cesc Fabregas var í byrjunarliði Barcelona í fyrsta sinn og hann var búinn að skora eftir 26 mínútur eftir sendingu frá Adriano. Fabregas spilaði á miðjunni en Xavi byrjaði á bekknum í kvöld. Seydou Keita kom Barcelona í 2-0 á 31. mínútu með skalla eftir sendingu frá Andrés Iniesta.

Pedro Rodriguez og Lionel Messi (2) bættu síðan við mörkum í seinni hálfleik en Messi kom inn á sem varamaður fyrir Fabregas á 57. mínútu. Messi var búinn að skora níu mínútum síðar og hann var kominn með tvö mörk eftir tuttugu mínútur.

Pedro hafði komið inn á fyrir Iniesta í upphafi seinni hálfleiksins, skoraði á 62. mínútu og lagði síðan upp mark fyrir Messi fjórum mínútum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×