Fótbolti

Fabregas skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona - Messi með þrennu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cesc Fabregas er búinn að opna markareikninginn sinn hjá Barcelona en hann skoraði eitt mark í 5-0 sigri liðsins í æfingaleik gegn Napoli í gær.

Fabregas fékk það loksins í gegn að verða seldur frá Arsenal til æskufélags síns í Barcelona í síðustu viku og var hann í byrjunarliðinu í gær. Hann kom inn á sem varamaður í síðari leik liðsins gegn Real Madrid um spænska ofurbikarinn í síðustu viku.

Fabregas kom Barcelona í 1-0 á 25. mínútu áður en Seydou Keita jók muninn stuttu síðar.

Lionel Messi kom svo inn á sem varamaður fyrir Fabregas. Hann átti stóran þátt í þriðja marki liðsins sem Pedro skoraði og skoraði svo sjálfur síðustu tvö mörk Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×