Fótbolti

Augnpot Mourinho tekið til rannsóknar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mourinho og Guardiola á hliðarlínunni í leiknum umtalaða.
Mourinho og Guardiola á hliðarlínunni í leiknum umtalaða. Nordic Photos/AFP
Spænska knattspyrnusambandið hefur hafið rannsókn á framgöngu Jose Mourinho í lok síðari viðureignar Barcelona og Real Madrid um spænska ofurbikarinn í síðustu viku. Mourinho stakk þá fingri í auga aðstoðarþjálfara Barcelona sem svaraði með því að slá til Mourinho.

Atvikið hefur vakið mikla athygli í knattspyrnuheiminum ekki síst vegna þess að talið var að ekkert yrði aðhafst í málinu. Þá hafði Jose Mourinho líst því yfir að hann sæi ekki eftir atvikinu.

Atvikið hefur nú verið skoðað og segja fulltrúar knattspyrnusambandsins að viðbrögð beggja aðila verði rannsökuð.

Upphaf atviksins má rekja til þess að Marcelo, varnarmaður Real, bauð Cesc Fabregas velkominn í spænska boltann með hrottalegri tæklingu á lokaandartökum leiksins. Í kjölfarið brutust út rifrildi og slagsmál milli leikmanna liðanna sem lauk með brottvísun David Villa, leikmanns Barcelona, og Mesut Özil, leikmanns Real Madrid.

Uppþotin fóru fram við hliðarlínunni beint fyrir framan varamannaskýli liðanna. Að því er virtist upp úr þurru gekk Mourinho aftan að Tito Vilanoca, aðstoðarþjálfara hjá Barcelona, og kleyp hann í kinnina og stakk fingri í auga hans. Vilanoca stóð ekki á sama og sló til Mourinho þegar hann gekk í burtu.


Tengdar fréttir

Pique: Mourinho er að eyðileggja spænska fótboltann

Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, sakaði Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, um að vera að reyna að eyðileggja spænska fótboltann eftir 3-2 sigur Barcelona á Real Madrid í spænska Ofurbikarnum í gær.

Barcelona tók fyrsta titil tímabilsins

Lionel Messi var enn og aftur hetja Barcelona en hann skoraði tvívegis í kvöld er Börsungar unnu Real Madrid í síðari leik liðanna um spænska ofurbikarinn.

Mourinho ætlar ekki að biðjast afsökunar

Knattspyrnustjóri Real Madrid, Jose Mourinho, ætlar ekki að biðjast afsökunar á hegðun sinni eftir síðari leik spænska Ofurbikarsins gegn Barcelona, en Real Madrid þurfti að lúta í gras fyrir erkifjendunum.

Mourinho sleppur líklega við refsingu fyrir að pota í auga Tito

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, átti stóran þátt í að magna upp hópslagsmálin í stórleik Barcelona og Real Madrid í spænska ofurbikarnum á miðvikudagaskvöldið þegar hann potaði viljandi í auga aðstoðarþjálfara Barcelona. Mourinho virðist hinsvegar ætla að sleppa við refsingu af því að dómari leiksins minntist ekkert á atvikið í skýrslu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×