Fótbolti

Getafe hvetur stuðningsmenn sína til þess að gerast sæðisgjafar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Spænska efstu deildar félagið Getafe fer heldur óhefðbundna leið í því að auglýsa ársmiða fyrir komandi tímabili. Félagið hefur látið framleiða auglýsingu þar sem stuðningsmenn félagsins eru hvattir til þess að gerast sæðisgjafar í þeim tilgangi að fjölga stuðningsmönnum félagsins.

Myndbandið gæti farið fyrir brjóstið á einhverjum og er fólk því hvatt til þess að lesa lýsingu myndbandsins áður en horft er á það.

Auglýsingin, sem skiljanlega er á spænsku, hefst á því að stuðningsmaður stendur á tómum leikvangi félagsins. Texti birtist á skjánum.

„Við eigum við vandamál að stríða: Við erum of fáir."

Í framhaldinu segir rödd okkur að það sé til lausn á vandamálinu og í sömu andrá beinir myndavélin sjónum sínum að klofi stuðningsmannsins.

Í næstu senu er stuðningsmaðurinn mættur á læknastofu tilbúin að leggja sitt af mörkum og gefa sæði. Honum er rétt lítið plastílát auk klámmyndar sem ber heitið: „Kynæsandi uppvakningar Getafe".

Klámmyndin sýnir ungar konur í herbergi þakið veggspjöldum til heiðurs Getafe ásamt fánum og treflum. Konurnar neyta drykkjar sem breytir þeim í uppvakninga með kynlíf á heilanum. Hugmyndin er sú að myndbandið sé svo erótískt að sæðisgjafinn eiga ekki í vandræðum með að leggja sitt af mörkum.

Í næstu senu sjáum við konu á spítala með nýfætt barn sitt í fanginu. Ný kynslóð stuðningsmanna Getafe að fæðast. Þvínæst sjáum við sæðisfrumu á leið inn í egg undir orðunum: „Því fleiri því betra."

Myndbandinu lýkur með upplýsingum um að myndbandið sé fáanlegt á næstu heilsugæslustöð.

José Antonio Cuétara, yfirmaður markaðsdeildar Getafe, segir myndina vissulega umdeilda en engu að síður góða. Félagið selur árlega um 9 þúsund ársmiða en þurfi að selja fleiri.

Getafe er minnsta Madridar-liðið í La Liga, efstu deild Spánar. Real Madrid og Atletico Madrid selja til samanburðar 85 þúsund og 42 þúsund ársmiða.

Angel Torres, leikstjóri myndarinnar, segir myndina ekki eiga að höfða til sérstaks hóps almennings. Aðeins til þeirra sem hafi góðan húmor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×