Fótbolti

Lionel Messi: Nýju strákarnir falla vel inn í þetta hjá okkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi og Thiago.
Lionel Messi og Thiago. Mynd/Nordic Photos/Getty
Lionel Messi skoraði tvö mörk í frábærum 5-0 sigri liðins á Villarreal á Nývangi í gær í fyrsta leik liðsins í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Hin þrjú mörk skoruðu nýju mennirnir í liðinu, Thiago Alcantara, Cesc Fabregas og Alexis Sanchez.

„Nýju strákarnir eru okkur mikilvægir því þeir hafa fallið vel inn í þetta hjá okkur," sagði Lionel Messi sem hefur náð vel saman við Cesc Fabregas eftir komu þess síðarnefnda frá Arsenal. Messi lagði upp mark fyrir Fabregas annan leikinn í röð.

„Við höfum þekkt hvorn annan síðan að við vorum litlir strákar. Eins og Xavi og Andres [Iniesta] þá veit hann vel hvað það þýðir að spila fyrir Barcelona," sagði Lionel Messi.

Messi var mjög ánægður með leikinn í gær en Pep Guardiola varð að stilla upp í þriggja manna varnarlínu því það eru svo margir meiddir varnarmenn hjá liðinu.

„Við sýndum það að það er allt í fínu lagi hjá okkur. Nú þurfum við bara að halda áfram á þessari braut," sagði Messi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×