Fótbolti

Sergio Ramos verður með Real á móti Barcelona á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gerard Pique og Sergio Ramos.
Gerard Pique og Sergio Ramos. Mynd/Nordic Photos/Getty
Spænski landsliðsmaðurinn Sergio Ramos verður með Real Madrid á móti Barcelona í Meistarakeppninni á morgun en fyrri leikur liðanna í Supercopa de Espana fer þá fram á Santiago Bernabeu í Madrid.

„Jose Mourinho fékk góðar fréttir í dag þegar ljóst var að Sergio Ramos yrði með á sunnudaginn," sagði í fréttatilkynningu frá Real Madrid en Ramos hefur verið að glíma við bakmeiðsli síðan snemma á undirbúningstímabilinu.

Sergio Ramos tók af fullum krafti þátt í æfingu liðsins í dag en hann gat ekki spilað með spænska landsliðinu á móti Ítölum í vikunni. Þar meiddust hinsvegar Barcelona-mennirnir Gerard Pique og Sergio Busquets sem eru báðir tæpir fyrir leikinn á móti Real Madrid.

Seinni leikurinn í Meistarakeppninni fer fram á miðvikudaginn á Camp Nou í Barcelona en þetta er í fyrsta sinn síðan 1997 sem Real Madrid og Barcelona mætast í þessum fyrstu leikjum hvers tímabils á Spáni. Barcelona hefur unnið Meistarakeppnina síðustu þrjú ár en real Madrid vann Meistarakeppnina síðast árið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×