Fótbolti

Magnað mark David Villa í jafntefli Real Madrid og Barcelona

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Real Madrid og Barcelona skildu jöfn 2-2 í fyrri leik liðanna um Ofurbikarinn á Spáni í kvöld. Leikið var á Bernabeu í Madrid.

Madridingar voru sterkari aðilinn í leiknum og komust yfir á 13. mínútu þegar Þjóðverjinn Mesut Özil skoraði. Börsungar jöfnuðu hins vegar metin upp úr þurru þegar David Villa skoraði stórkostlegt mark með langskoti á 36. mínútu.

Allt leit út fyrir að staðan yrði jöfn í leikhléi en Lionel Messi skoraði mark í viðbótartíma og Spánar- og Evrópumeistararnir leiddu í hálfleik.

Xabi Alonso jafnaði metin fyrir Madridinga snemma í síðari hálfleiknum og lokatölurnar 2-2.

Liðin mætast í síðari viðureigninni á Nou Camp í Barcelona á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×