Fótbolti

Guardiola: Þetta voru erfiðar samningaviðræður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona.
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona. Mynd/Nordic Photos/Getty
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, sat fyrir svörum blaðamanna í morgun þar sem hann var spurður út í nýja leikmanninn sinn Cesc Fabregas og samningaviðræðurnar við Arsenal.

„Þetta voru erfiðar samningaviðræður enda er Arsenal stór klúbbur eins og Barcelona. Þegar allt kom til alls þá eru þeir líkja manneskjur eins og við og þetta mál auðveldar frekari samskipti félaganna í framtíðinni," sagði Pep Guardiola og hrósaði líka Arsene Wenger og Arsenal fyrir uppkomu Cesc Fabregas.

„Cesc er alinn upp í Barcelona en það er herra Arsene Wenger og Arsenal að þakka hversu stór leikmaður hann varð," sagði Guardiola á sinni bjöguðu ensku.

Cesc Fabregas fór í gegnum læknisskoðun í morgun og var kynntur fyrir blaðamönnum á blaðamannafundi í hádeginu á Spáni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×