Fótbolti

Fabregas búinn að skrifa undir fimm ára samning við Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Mynd/Nordic Photos/AFP
Cesc Fabregas er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Barcelona en hann fór í gegnum tvær læknisskoðanir í morgun, fyrst á spítalanum í Barcelona og svo hjá læknaliði Barcelona.

Framundan eru myndatökur og blaðamannafundur. Cesc Fabregas er þessa stundina að ganga út á Camp Nou þar sem að hann verður kynntur fyrir stuðningsmönnum Barcelona.

Hálftíma seinna mun hann síðan halda blaðamannafund þar sem búast við að Cesc verði kátur í svörum enda draumur hans að rætast.

Kaupverðið er talið að vera um 35 milljónir punda en það verður hægt að kaupa upp samninginn fyrir 200 milljónir evra sem er engin smá upphæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×