Fótbolti

Cesc: Ætla að spila með Xavi en ekki að koma í staðinn fyrir hann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cesc Fabregas er í viðtali inn á heimasíðu Barcelona þar sem hann tjáði sig um atburði síðustu daga en hann var kynntur sem leikmaður félagsins á mánudaginn og vann síðan sinn fyrsta titil á miðvikudagskvöldið.

„Ég hef verið undir mikilli pressu síðustu mánuði og það hefur tekið á andlega. Þetta er loksins gengið í gegn og ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur til Barca," sagði Cesc Fabregas.

„Það var mín ákvörðun að fara frá Barcelona á sínum tíma og ég átti aldrei von á því að spila fyrir aðallið Barcelona, ekki einu sinni í mínum viltustu draumum. Ég bjóst aldrei við að fá að upplifa svona dag eins og mánudaginn, ekki sem krakki og ekki þegar ég var að spila með Arsenal," sagði Fabregas.

„Ég er enn mjög ungur og á mín bestu fótboltaár eftir. Ég á líka enn eftir að læra mikið og vonast eftir því að þroskast sem fótboltamaður hjá Barcelona," sagði Fabregas en hann er ekki kominn til þess að taka við af Xavi.

„Ég tel að Xavi eigi enn eftir nokkur góð ár. Hann gerir ótrúlega hluti inn á vellinum og ég er ekki kominn hingað til að koma í staðinn fyrir hann. Ég kom hingað til að spila með Xavi, til að keppa um stöðu við Xavi og til að vinna titla með Xavi. Þetta á alveg eins við þá Andres Iniesta og Thiago því saman myndum við mjög góðan hóp," sagði Fabregas.

Cesc rifjar líka upp þegar hann fékk áritaða treyju frá Pep Guardiola þáverandi leikmanni Barcelona og núverandi þjálfara liðsins. Á peysunni stóð: „Þú verður leikmaður númer 4 hjá Barca," og á mánudaginn rættist þessi óvenjulega spá Guardiola en Fabregas var þarna bara fjórtán ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×