Fótbolti

Forráðamenn Real Madrid: Messi er ekki alveg saklaus

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Forráðamenn Real Madrid segja hegðun Lionel Messi eftir að hann skoraði sigurmark sitt í Ofurbikarnum í vikunni eiga sinn þátt í því að upp úr sauð í leikslok. Leikmenn og þjálfari Barcelona kenndu José Mourinho og lærisveinum hans um hvernig fór en Real-menn hafa nú svarað því með nýjum ásökunum á hendur Barca-liðinu.

Barcelona vann 3-2 sigur í þessum seinni leik liðanna í spænska Ofurbikarnum. Leikurinn var frábær skemmtun þar til að það brutust út hópslagsmál í lokin en þetta var ekki í fyrsta sinn á þessu ári þar sem allt verður vitlaust í leik þessara erkifjenda.

Forráðamenn Real Madrid afsaka ekki framkomu þjálfara síns (Mourinho potaði í auga aðstoðarþjálfara Barca) eða gróft brot Marcelo á Cesc Fabregas en þeir eru hinsvegar afar óhressir með hegðun Josep Guardiola í leiknum.

Josep Guardiola, þjálfari Barcelona, átti líka í þrígang hafa farið upp að varamannabekk Real Madrid og kallað: "Þið eruð hyski, þið eruð hyski."

Mesta athygli vekur þó ásakanir þeirra á hendur besta fótboltamanns í heimi sem en það var einmitt Lionel Messi sem gerði út um leikinn með tveimur mörkum og einni stoðsendingu.

Lionel Messi gaf José Mourinho og Real Madrid bekknum merki með annarri höndinni um leið og hann labbaði framhjá þeim eftir sigurmarkið sitt. Það er best að túlka þetta merki sem: "Hvað eruð þið að röfla" og það sést vel á sjónvarpsmyndum frá leiknum. Það má sjá þetta með því að smella hér fyrir ofan.

Forráðamenn Real hafa talað um það í fjölmiðlum í dag að þessi framkoma Messi hafi verið eins og olía á eld en argentínski snillingurinn var þarna eflaust orðinn mjög pirraður á spörkum Real-manna í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×