Fótbolti

Þjálfari Santos: Ekki gott fyrir Neymar að fara til Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Muricy Ramalho, þjálfari Santos, segir að brasilíska undrabarnið Neymar myndi eiga erfitt uppdráttar hjá Real Madrid þar sem leikstíll liðsins henti honum ekki.

Þó svo Neymar sé ekki á förum til Real í sumar gæti farið svo að hann gangi í raðir félagsins í janúar. Hann mun kosta 45 milljónir evra.

"Leikur Real er mjög taktískur en Neymar vill vera frjáls í sínum leik. Hann vill spila eins og hann sé að leika sér á götunni," sagði Neymar.

"Barcelona er mun teknískara lið og leikur þeirra er meira í anda brasilísks fótbolta. Þess vegna hefur okkar mönnum gengið vel þar. Ég óttast því að hann muni eiga erfitt uppdráttar ef hann fer til Madrid."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×