Fótbolti

Ósætti um sjónvarpstekjur Barcelona og Real Madrid

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
David Villa fagnar marki í leik gegn Real Madrid á síðustu leiktíð.
David Villa fagnar marki í leik gegn Real Madrid á síðustu leiktíð. Nordic Photos/AFP
Forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Betis segir að sívaxandi yfirburðir Barcelona og Real Madrid séu slæm fyrir spænsku deildina. Hann segir að skoða verði sjónvarpstekjur stórliðanna miðað við tekjur minni liðanna.

Það er óhætt að segja að sjónvarpstekjurnar dreifist ekki jafnt milli félaganna í spænsku fyrstu deildinni La Liga. Barcelona og Real Madrid fá um helming sjónvarpsteknanna til sín en afgangurinn deilist milli hinna félaganna.

„Bilið milli Barcelona, Real Madrid og hinna liðanna mun halda áfram að vaxa og vaxa,“ segir Miguel Guillen forseti Real Betis sem vann sér sæti í La Liga á nýjan leik í vor. Betis á í miklum fjárhagserfiðleikum líkt og fleiri spænsk lið.

Jose Maria del Nido, forseti Sevilla nágrannaliðs Betis, er sama sinnis og segir spænsku deildina vera rusl.

„Fólk í Suður-Ameríku, Asíu og Bandaríkjunum mun missa áhuga á deildinni því það veit að aðrir leikir en viðureignir Barcelona og Real Madrid skipta engu máli,“ sagði del Nido.

Útreikningar prófessorsins Jose Maria Gay við háskólann í Barcelona sýna að Barcelona fékk 158 milljón evrur í sjónvarpstekjur tímabilið 2009-2010 og Real Madrid 136 milljón evrur. Samanlagt gera þetta 48 prósent af heildartekjum deildarinnar. Getafe, nágrannar Real Madrid, fengu til samanburðar 6 milljónir evra eða 1 prósent af heildinni.

Málum er öðruvísi háttað í ensku úrvalsdeildinni. Til dæmis fékk Manchester United 64.5 milljón evrur umrætt tímabil eða tæp sex prósent. Bolton og Wolves fengu til samanburðar rúmar 40 milljónir evra eða um fjögur prósent af heildarpakkanum. Öllu jafnari dreifing.

Barcelona og Real Madrid hafa samið við hin lið deildarinnar um jafnari skiptingu sjónvarpstekna frá og með árinu 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×