Fótbolti

Ramos og Pepe framlengja við Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Real Madrid greindi frá því í dag að félagið væri búið að gera nýja samninga við varnarmennina Sergio Ramos og Pepe. Ramos skrifaði undir samning til 2017 en Pepe til 2016.

Ramos átti enn tvö ár eftir af sínum samningi við félagið en samningur Pepe átti að renna út eftir eitt ár.

Báðir leikmenn hafa verið orðaðir við önnur félög í sumar en það verður ekki af því að þeir fari frá Madrid.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×