Fótbolti

Adebayor nálgast Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það lítur út fyrir að framherjinn Emmanuel Adebayor fái þá ósk sína uppfyllta að spila áfram með Real Madrid. Sky greinir frá því í kvöld að málin séu að þokast í rétta átt.

Adebayor fékk ekki að fara með Man. City í æfingaferð til Bandaríkjanna og verður klárlega seldur frá félaginu.

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, lofaði Emmanuel Adebayor því að kaupa hann í sumar og heimildir Sky herma að Madrid sé komið í samband við Man. City.

Adebayor skoraði 5 mörk í 21 leik með Madrid á síðasta tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×