Fótbolti

Coentrao til Real Madrid á 30 milljónir evra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fabio Coentrao (t.h.) í leik með Benfica
Fabio Coentrao (t.h.) í leik með Benfica Nordic Photos/AFP
Benfica hefur samþykkt boð frá Real Madrid í portúgalska vinstri bakvörðinn Fabio Coentrao. Kaupverðið er talið vera 30 milljónir evra eða sem nemur um fimm milljörðum íslenskra króna. Landsliðsmaðurinn portúgalski á eftir að semja um kaup og kjör auk þess sem hann þarf að gangast undir læknisskoðun.

Coentrao sem er 23 ára var samningsbundin Benfica til ársins 2016. Hann er talinn einn efnilegasti leikmaðurinn í sinni stöðu í heiminum. Hann þótti standa sig vel á HM síðasta sumar og spilað vel með Benfica undanfarin tvö ár.

Hjá Real Madrid hittir Coentrao fyrir landa sína Ricardo Carvalho og Pepe auk knattspyrnustjórans Jose Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×