Fótbolti

Mourinho íhugar að setja Casillas af sem fyrirliða

Spænska íþróttablaðið Marca greinir frá því að Mourinho ætli að taka fyrirliðabandið af markverðinum Iker Casillas en Mourinho telur að það sé betra fyrir liðið að útileikmaður sé fyrirliði.
Spænska íþróttablaðið Marca greinir frá því að Mourinho ætli að taka fyrirliðabandið af markverðinum Iker Casillas en Mourinho telur að það sé betra fyrir liðið að útileikmaður sé fyrirliði. AFP
Jose Mourinho fer sjaldnast troðnar slóðir og portúgalski knattspyrnustjórinn hjá Real Madrid er sagður vilja gera breytingar sem gætu valdið titringi í herbúðum liðsins. Spænska íþróttablaðið Marca greinir frá því að Mourinho ætli að taka fyrirliðabandið af markverðinum Iker Casillas en Mourinho telur að það sé betra fyrir liðið að útileikmaður sé fyrirliði.

Hinn þrítugi Casillas, er fyrirliði heims og Evrópumeistaraliðs Spánar, og hann hefur leikið yfir 400 leiki fyrir Real Madrid á þeim 12 árum sem hann hefur verið fyrsti valkostur í markinu. Casillas verður áfram í lykilhlutverki hjá Real Madrid og samkvæmt fréttinni í Marca mun hann halda áfram að sjá um ýmis mál sem tengjast samningum og bónusgreiðslum til leikmanna.

Líklegastir til þess að fá fyrirliðabandið eru þeir Xabi Alonso og Sergio Ramos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×