Fótbolti

Bojan: Ekki farinn til Roma enn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bojan Krkic á æfingu spænska U-21 liðsins í Danmörku.
Bojan Krkic á æfingu spænska U-21 liðsins í Danmörku. Nordic Photos / AFP
Bojan Krkic, leikmaður Barcelona, vildi ekki staðfesta í gær að hann væri á leið frá félaginu og til Roma á Ítalíu eins og hefur verið fullyrt í fjölmiðlum á Ítalíu og Spáni.

Krkic varð í gær Evrópumeistari U-21 liða með Spáni og svaraði engum spurningum um málið eftir úrslitaleikinn gegn Sviss. „Ég er nýorðinn Evrópumeistari og vil fyrst fagna með liðsfélögum mínum áður en ég sný aftur til Barcelona,“ sagði hann við spænska fjölmiðla.

„Ég get ekki staðfest að félagaskiptin hafa gengið í gegn og að ég sé orðinn leikmaður Roma.“

Bojan fékk lítið að spila á mótinu og tókst ekki að vinna sér sæti í byrjunarliði Spánverja. „Þetta hefur ekki verið skemmtileg reynsla en ég hef verið tilbúinn ef þjálfarinn vildi nota mig. Ég hefði gjarnan viljað fá stærra hlutverk en það sem mestu máli skiptir er að við urðum meistarar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×