Fótbolti

Ramos ekki í stríði við Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Umboðsmaður spænska varnarmannsins Sergio Ramos, Rene Ramos, segir að meint neikvæð ummæli hans um Real Madrid séu uppspuni frá rótum. Hann sé ekki í neinu stríði við félagið.

Haft var eftir umbanum, sem er bróðir leikmannsins, að Ramos ætti skilið betri meðferð frá félaginu og þess vegna útilokaði hann ekki að leita fyrir sér annars staðar.

"Ég sagði þetta aldrei. Ég er ekki vanur að segja slíka hluti. Þetta fer virkilega í taugarnar á mér því einhver er að reyna að búa til deilur á milli okkar og félagsins. Ég mun ræða þetta mál við lögfræðinga," sagði Rene Ramos reiður.

Ramos er sem stendur í samningaviðræðum við Madrid og þokast hægt í þeim viðræðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×