Enski boltinn

Barcelona býður 35 milljónir punda í Fabregas

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arsenal fékk Fabregas frá Barcelona þegar hann var 16 ára gamall
Arsenal fékk Fabregas frá Barcelona þegar hann var 16 ára gamall Nordic Photos/AFP
Evrópumeistarar Barcelona eru ekki búnir að gefast upp á Cesc Fabregas miðjumanni Arsenal. Börsungar hafa hækkað boð sitt í spænska landsliðsmanninn og vona að 35 milljónir punda dugi til þess að ná leikmanninum aftur heim til Barcelona.

Stutt er síðan 27 milljóna punda tilboði Barcelona var hafnað en talið er að nýja tilboðið gæti orðið nóg til þess að benda endi á söguna endalausu. Sumar eftir sumar hefur miðjumaðurinn verið orðaður við uppeldisfélag sitt en haldið tryggð við Arsenal.

Nú virðist annað hljóð komið í kappann ef marka má Lady Ninu Bracewell-Smith, fyrrum stjórnarmann Arsenal sem seldi hlut sinn í félaginu í apríl síðastliðnum.

„Það er augljóst að hann vill fara. Það er ekki hægt að halda leikmanni ef hjarta hans er ekki hjá félaginu,“ sagði Bracewell-Smith við breska fjölmiðla fyrr í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×