Fótbolti

Ekkert vesen á milli leikmanna Barca og Real í landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gekk mikið á í leikjum Barcelona og Real Madrid í vor.
Það gekk mikið á í leikjum Barcelona og Real Madrid í vor. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona-maðurinn Andres Iniesta hefur engar áhyggjur af því að mórallinn í spænska landsliðinu verði slæmur eftir allar rimmur Barcelona and Real Madrid á síðustu vikum. Það fór nefnilega allt fór upp í háaloft á milli leikmenna spænsku stórliðanna þegar þau mættust í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Spænska landsliðið spilar sinn fyrsta leik eftir Clasico-maraþonið á laugardaginn kemur þegar liðið spilar vináttulandsleik við Bandaríkin en liðið spilar einnig vináttuleik við landslið Venúsela þremur dögum síðar.

„Það eru engin vandamál en ef einhver er ósáttur þá vona ég að hann segi frá því. Ég get ekkert talað meira um þetta því það eru engin vandamál," sagði Andres Iniesta.

Í spænska landsliðinu nú eru Barcelona-mennirnir Víctor Valdés, Gerard Piqué, Xabi Alonso, Sergio Busquets, Andrés Iniesta, David Villa og Pedro Rodríguez og Real Madrid mennirnir Iker Casillas, Álvaro Arbeloa, Raúl Albiol, Sergio Ramos og Xabi Alonso.

„Við erum allir að spila með spænska landsliðinu og höfum sama markmið. Ljótir hlutir gerðust í þessum leikjum en þá voru við að berjast fyrir sitthvorum málstaðnum," sagði Iniesta sem er enn í skýjunum eftir 3-1 sigur Barcelona á Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

„Ég hafði mjög gaman af þessum leik og þetta er besti og skemmtilegasti úrslitaleikurinn sem ég hef spilað á ferlinum," sagði Iniesta sem skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum á HM síðasta sumar.

„Við stjórnuðum leiknum og vissum allan tímann að við myndum skora. Þetta var fullkominn endir á flottu tímabili," sagði Iniesta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×