Enski boltinn

Manchester City vann Barcelona

Arnar Björnsson skrifar
Roberto Mancini, stjóri Manchester City.
Roberto Mancini, stjóri Manchester City. Mynd/AP
Kapphlaupi liðanna um 17 ára gamlan miðjumann Celta Vigo, Denis Suarez, lauk í dag þegar forseti Celta staðfesti að félagið hefði tekið tilboði frá Manchester City.

City greiðir 850 þúsund pund fyrir strákinn en upphæðin gæti endað í 2,75 milljónum punda. 

Suarez varð 17 ára í janúar og sló í gegn með spænska 17 ára landsliðinu.  Í 7 leikjum með liðinu er hann búinn að skora 2 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×