Fótbolti

Real Madrid að krækja í Coentrao

Stefán Árni Pálsson skrifar
Real Madrid ætlar sér greinilega stóra hluti á leikmannamarkaðnum í sumar og forráðamenn félagsins eru þessa daganna í leit að nýjum leikmönnum fyrir næstkomandi tímabil.

Nýjasta nafnið í þeirri sögu er Fabio Coentrao, leikmaður Benfica, en hann ku ver á leið til Real Madrid fyrir um 30 milljónir evra.

Coentrao hefur leikið afar vel fyrir Benfica og er einn heitasti bitinn á markaðnum, en hann ætti að styrkja vörn Madridínga mikið.

„Það er aðeins eitt lið sem ég hef áhuga á að fara til og það er Real Madrid, annars líður mér vel hjá Benfica,“ sagði Coentrao við spænska fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×