Handbolti

Murray er allur að koma til

Stefán Árni Pálsson skrifar
Murray á æfingasvæðinu í dag. Mynd. / Getty Images
Murray á æfingasvæðinu í dag. Mynd. / Getty Images
Breski tenniskappinn, Andy Murray,  hefur átt við smávægileg meiðsli að undanförnu en virðist allur vera koma til og ætti að verða klár fyrir Madrid Open sem hefst í næstu viku.

Murray hefur hæft síðastliðna viku og útlitið er nokkuð bjart fyrir helstu vonarstjörnu Breta í Tennis.

Kappinn þurfti að hætta keppni í Barcelona Open í síðasta mánuði eftir að olnbogameiðsli tóku sig upp, en hann hefur verið í endurhæfingu síðan þá.

„Olnboginn er í fínu standi og ég hef getað æft af fullum krafti í heila viku,“ sagði Murray.

Murray hefur verið að æfa undir handleiðslu Darren Cahill, fyrrverandi þjálfara Andre Agassi, að undanförnu.

„Hann aðstoðaði mig í gær og við eigum eftir að vinna saman meira í vikunni,“ sagði Murray.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×