Fótbolti

Tveir tapleikir á heimavelli í röð hjá Mourinho - ekki gerst síðan 2002

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Strákarnir hans Mourinho eru að gefa eftir.
Strákarnir hans Mourinho eru að gefa eftir.
Tap Real Madrid fyrir Real Zaragoza á Santiago Bernabeau í gær var fyrir margra hluta sakir áhugavert. Ekki síst fyrir þá staðreynd að Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var að tapa sínum öðrum leik á heimavelli í röð.

Það hefur ekki gerst síðan árið 2002 er Mourinho var að þjálfa í Portúgal.

Mourinho á eitt af ótrúlegri metum boltans en lið hans spiluði 150 leiki í röð á þess að tapa. Lið hans spiluðu í heil átta ár án þess að tapa.

Það er því eitthvað að gefa sig hjá Real Madrid þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×