Fótbolti

Ronaldo tryggði Real Madrid bikarmeistaratitilinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Ronaldo fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Real Madrid varð í kvöld bikarmeistari á Spáni eftir sigur á Barcelona, 1-0, í framlengdum úrslitaleik. Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins. Þetta er fyrsti titill Real Madrid undir stjórn Jose Mourinho.

Barcelona var betra liðið í venjulegum leiktíma en herslumuninn vantaði til þess að skora. Liðinu tókst það reyndar einu sinni en markið var dæmt af vegna vafasamrar rangstöðu.

Real Madrid átti fínar skyndisóknir og Cristiano Ronaldo komst nokkrum sinnum í álitlegar stöður.

Engin mörk voru þó skoruð í venjulegum leiktíma og því varð að framlenga. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks framlengingar náði Real að komast yfir.

Argentínumaðurinn Angel di Maria átti þá frábæra sendinu í teiginn sem Ronaldo stangaði í netið af krafti. Glæsilegt mark sem reyndist vera eina mark leiksins.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×