Sport

NBA: Lakers og San Antonio jöfnuðu metin - Denver í vandræðum

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Pau Gasol og félagar hans í LA Lakers hafa titil að verja í NBA deildinni. Hér tekur Spánverjinn frákast gegn New Orleans í gær.
Pau Gasol og félagar hans í LA Lakers hafa titil að verja í NBA deildinni. Hér tekur Spánverjinn frákast gegn New Orleans í gær. AP
Meistaralið LA Lakers lagði New Orleans Hornets 87-78 í gær í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA deildarinnar í körfubolta og er staðan í einvíginu 1-1. Þrír leikir fóru fram í gær og náði San Antonio Spurs að jafna metin gegn Memphis Grizzlies með 93-87 sigri á heimavelli. Oklahoma er 2-0 yfir gegn Denver Nuggets eftir 106-89 sigur liðsins í gær.



LA Lakers (2) – New Orleans (7) 87-78

Lakers hefur unnið 9 af síðustu 12 leikjum sínum í New Orleans og meistaraliðið er því með tölfræðina á bak við sig í þeim efnum en fjóra sigra þarf til þess að komast í undanúrslit Vesturdeildar.

Andrew Bynum skoraði 17 stig fyrir Lakers og tók 11 fráköst. Lamar Odom skoraði 16 og tók 7 fráköst, Ron Artes skoraði 15 en Kobe Bryant hefur oft leikið betur. Hann hitti aðeins 3 af alls 10 skotum sínum utan af velli og hann skoraði aðeins 11 stig sem er það næst lægsta hjá honum á tímabilinu.

Trevor Ariza skoraði 22 stig fyrir New Orleans og Chris Paul skoraði 20 og gaf 9 stoðsendingar. Kobe Bryant lék vörnina gegn Paul í þessum leik en Paul fór afar illa með Lakers í fyrsta leiknum. Þessi breyting gafst vel og Derek Fisher og Ron Artest leystu Bryant af í þessu hlutverki í leiknum.

San Antonio (1) – Memphis (8) 93-87
Manu Giniobili var áberandi í San Antonio liðinu gegn Memphsi í gær.AP
Argentínumaðurinn Manu Ginobili lék með San Antonio á ný þrátt fyrir að vera meiddur á hægri olnboga. Hann var mjög áberandi í 93-87 sigri San Antonio sem náði að jafna metin gegn Memphis sem „stal" sigrinum í fyrsta leiknum gegn liðinu sem var með bestan árangur í vetur í Vesturdeildinni. Memphis leikur næstu tvo leiki á heimavelli og er staðan jöfn 1-1. Ginobili tók 7 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal boltanum 4 sinnum á þeim 34 mínútum sem hann lék.

Zach Randolph skoraði aðeins 11 stig fyrir Memphis og Marc Gasol skoraði 12. Samanlagt skoruðu þeir 49 stig í fyrsta leiknum og vörn San Antonio náði að loka betur á þá félaga undir körfunni en þeir gerðu í fyrsta leiknum.

Oklahoma (4) – Denver (5) 106-89
Russel Westbrook er lykilmaður i Oklahoma og hér skorar hann gegn Nene.AP
Oklahoma City Thunder byrjaði með látum gegn Denver og náði 43-17 forskoti í fyrri hálfleik. Það bil náði Denver aldrei að brúa og Oklahoma sigraði 106-89 og er 2-0 yfir í einvíginu fyrir næstu tvo leiki sem fram fara í Denver. Kevin Durant og Russell Westbrook voru að venju atkvæðamestir í liði Oklahoma og skoruðu þeir samanlagt 44 stig en þeir skoruðu samanlagt 72 stig í fyrsta leiknum.

Durant skoraði 23 og Westbrook skoraði 21. James Harden skoraði 18 stig og miðherjinn Serge Ibaka skoraði 12 og tók 12 fráköst. Oklahoma var með yfirburði í fráköstunum og tók liðið 53 fráköst samanlagt en Denver aðeins 31. Ty Laeson skoraði 20 stig fyrir Denver, Nene skoraði 16 íkt og Raymond Felton.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×