Fótbolti

Ronaldo er ekki til sölu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Real Madrid segir það vera algjörlega útilokað að Portúgalinn Cristiano Ronaldo verði seldur frá félaginu. Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan, lýsti því yfir á dögunum að hann dreymdi um að kaupa Ronaldo.

"Það er gaman að vita af því að önnur lið dreymi um okkar leikmenn. Ég get þó fullyrt að hann verður ekki seldur. Málinu er það með lokið af okkar hálfu," sagði Jorge Valdano, framkvæmdastjóri Real Madrid.

Ronaldo er dýrasti leikmaður allra tíma en Real greiddi Man. Utd rúmar 80 milljónir punda fyrir leikmanninn á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×