Fótbolti

Puyol í hópi Barcelona á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Carles Pyol, fyrirliði Barcelona, verður í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Real Madrid á morgun. Hann hefur verið frá í þrjá mánuði vegna meiðsla.

Puyol hefur verið að glíma við hnémeiðsli og lék síðast með liðinu þann 22. janúar síðastliðinn.

Hann gat æft með liðinu í dag og fékk því grænt ljóst frá læknum liðsins fyrir leikinn gegn Madrídingum annað kvöld.

„Þetta kom okkur nokkuð á óvart," sagði Pep Guardiola, stjóri Barcelona. „Hann hefur verið frá í langan tíma en hann er fyrirliðinn okkar."

„Hann er núna verkjalaus og þess vegna ákváðum við að kalla hann í hópinn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×