Fótbolti

Guardiola segist ekki vera að hætta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Fjölmiðlar greindu frá því fyrir skemmstu að Pep Guardiola ætlaði sér að hætta að þjálfa Barcelona árið 2012. Guardiola segir þessar fréttir ekki réttar. Hann sé ekki að íhuga að hætta.

"Ég vil að það komi fram að ég er ekki að hugsa um að hætta," sagði Guardiola og viðurkenndi að ekki hefði verið snúið út úr orðum hans. Hann aftur á móti væri á stundum ekki nógu skynsamur í viðtölum.

Í viðtalinu talaði Guardiola um að menn verði að þekkja sinn vitunartíma og hans tími væri brátt búinn. Leikmenn þreytist á þjálfurum og öfugt.

Hann hefur hingað til aðeins viljað gera eins árs samning við Barcelona hverju sinni og gerði nýlega samning sem gildir út næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×