Fótbolti

Pepe hjá Real til 2015

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pepe, lengst til vinstri, fagnar marki í leik með Real Madrid.
Pepe, lengst til vinstri, fagnar marki í leik með Real Madrid. Nordic Photos / AFP
Spænska dagblaðið Marca staðhæfir í dag að varnarmaðurinn Pepe frá Portúgal hafi samþykkt nýjan samning við Real Madrid og að hann verði samningsbundinn félaginu til 2015.

Pepe kom til Real frá Porto í heimalandinu árið 2007 fyrir 30 milljónir evra en núverandi samningur hans rennur út á næsta ári.

Pepe er fæddur í Brasilíu en kom til Portúgals átján ára gamall. Hann fékk svo portúgalskan ríkisborgararétt í ágúst árið 2007 og hefur síðan þá leikið 30 leiki með landsliði Portúgals. Hann er 28 ára gamall.

Samkvæmt frétt Marca mun nýi samningurinn tryggja Pepe um fjórar milljónir evra í árslaun og að hann muni því meira en tvöfaldast í launum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×