Fótbolti

Alves hjá Barcelona til 2015

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Bakvörðurinn Dani Alves hefur skrifað undir nýjan samning við Barcelona og verður hjá félaginu til loka tímabilsins 2015.

Viðræður Alves og Barcelona tóku sinn tíma og var Alves til að mynda orðaður við Manchester City.

Alves er 27 ára gamall og kom til Barcelona frá Sevilla árið 2008. Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liði félagsins síðan þá en Börsungar hafa á þessum tíma unnið átta titla, þar af spænsku úrvalsdeildina tvisvar og Meistaradeild Evrópu árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×