Fótbolti

Real vann borgarslaginn gegn Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Real fagna í kvöld.
Leikmenn Real fagna í kvöld.
Real Madrid náði að minnka mun Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í fimm stig í kvöld. Real vann þá góðan útisigur á nágrönnum sínum í Atletico, 1-2.

Karim Benzema skoraði fyrsta mark leiksins á 11. mínútu og Mesut Özil bætti öðru marki við 20 mínútum síðar.

Real var með fín tök á leiknum í kjölfarið en smá spenna hljóp í leikinn undir lokin. Sergio Aguero minnkaði muninn fjórum mínútum fyrir leikslok og Atletico gerði síðan heiðarlega tilraun til þess að jafna leikinn.

Það gekk ekki eftir og Real fór því heim með öll stigin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×