Fótbolti

Keita tryggði Barcelona 1-0 sigur og tíu stiga forskot

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Seydou Keita í leiknum í kvöld.
Seydou Keita í leiknum í kvöld. Mynd/AP
Seydou Keita skoraði mikilvægt mark fyrir Barcelona í kvöld þegar liðið vann 1-0 sigur á Real Zaragoza á Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Barcelona náði þar með tíu stiga forskoti á Real Madrid sem á leik inni á morgun á móti Racing Santander á útivelli.

Seydou Keita skoraði markið sitt á 43. mínútu af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Lionel Messi. Barcelona var með boltann nálægt 80 prósent leiktímans en gekk illa að skapa sér góð færi á móti þéttri vörn Real Zaragoza liðsins.

Þetta var aðeins annað deildarmark Seydou Keita á tímabilinu en hann hafði skorað síðast í 3-1 sigri Barcelona á Athletic Bilbao 25. september síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×