Fótbolti

Barcelona sótti þrjú stig til Mallorca

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi skorar hér fyrsta mark leiksins.
Messi skorar hér fyrsta mark leiksins.
Barcelona náði í kvöld átta stiga forskoti í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið vann þá öruggan útisigur á Mallorca, 0-3.

Lionel Messi kom Börsungum á bragðið í kvöld með marki á 37. mínútu og gestirnir leiddu með þessu marki í hálfleik.

Það voru aðeins liðnar níu mínútur af síðari hálfleik þegar David Villa kom Barcelona í 0-2 og Pedro afgreiddi leikinn með marki 25 mínútum fyrir leikslok.

Yfirburðir Börsunga voru miklir í leiknum og til marks um það má geta þess að þeir héldu boltanum yfir 70 prósent leiktímans.

Real Madrid er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar og getur minnkað muninn aftur í fimm stig með sigri á Deportivo í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×