Fótbolti

Real Madrid mistókst að vinna botnliðið

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. AFP
Real Madrid mistókst að komast á topp La Liga á Spáni eftir 1-1 jafntefli við Almeria í kvöld. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir félagið en Almeria er neðsta lið deildarinnar.

J.L Ulloa kom Almeria óvænt yfir eftir klukkutíma leik

Jose Mourinho brást ókvæða við og fór í þriggja manna vörn og fjölgaði á miðjunni. Það heppnaðist hjá Portúgalanum því Real jafnaði metin.

Esteban Granero skoraði með flottu skoti þegar þrettán mínútur voru eftir.

Þrátt fyrir pressu undir lokin tókst Real ekki að skora, Ronaldo skaut meðal annars í slánna úr aukaspyrnu í uppbótartíma, og liðið er nú stigi á eftir Barcelona sem á leik til góða sem hefst klukkan 20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×