Fótbolti

Real fór létt með Malaga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldo fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Ronaldo fagnar öðru marka sinna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Cristiano Ronaldo og Gonzalo Higuain voru á skotskónum þegar að Real Madrid vann öruggan útisigur á Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Real vann leikinn, 4-1, og skoruðu þeir Ronaldo og Higuain tvö mörk hvor. Kris Stadsgaard skoraði mark Malaga. Ronaldo skoraði annað marka sinna úr víti.

Með sigrinum fór Real á topp spænsku úrvalsdeildarinnar. Valencia var á toppnum fyrir leiki dagsins en liðið tapaði fyrir Barcelona í kvöld.

Real er með sautján stig en Barcelona og Valencia með sextán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×