Körfubolti

Kobe: Ég er klár í slaginn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Kobe Bryant mun í nótt spila sinn fyrsta körfuboltaleik fyrir LA Lakers síðan 5. febrúar. Átján daga hvíldin hefur skilað sínu og Kobe segist vera klár í bátana.

„Ég er tilbúinn og ökklinn er heill. Hann er svona 80-85 prósent góður og ég þarf að spila og reyna á hann svo hann verði 100 prósent," sagði Kobe.

Hann hefur misst af síðustu fimm leikjum Lakers en liðinu gekk furðuvel án hans. Vann fjóra leiki en tapaði aðeins einum.

„Hann er ekki að stökkva fullklár í slaginn en það er gott að fá hann aftur á gólfið," sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers.

Lakers spilar gegn Memphis Grizzlies í nótt. Síðast þegar Kobe spilaði gegn liðinu skoraði hann 44 stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×