Enski boltinn

Caicedo lánaður til Malaga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Felipe Caiceda.
Felipe Caiceda. Nordic Photos / AFP

Manchester City hefur lánað sóknarmaninn Felipe Caicedo til Malaga á Spáni til loka núverandi tímabils.

Caicedo hefur verið í láni hjá Sporting Lissabon síðan í sumar en félagið ákvað að framlengja ekki lánssamninginn.

Phil Brown, stjóri Hull, greindi frá því í vikunni að hann vonaðist til að fá Caicedo að láni en ekkert verður nú að því í bili.

Caicedo er 21 árs gamall og frá Ekvador en hann kom til City frá FC Basel í Sviss fyrir um fimm milljónir punda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×