Fótbolti

Mourinho ætlar að kaupa Fernando Llorente næsta sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Llorente fagnar marki með spænska landsliðinu.
Fernando Llorente fagnar marki með spænska landsliðinu. Mynd/AFP
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur mikinn áhuga á því að næla í Fernando Llorente, framherja Athletic Bilbao næsta sumar en portúgalski þjálfarinn er ekki nógu ánægður með sóknarmenn sína á þessu tímabili.

Fernando Llorente er 25 ára og 195 sm miðherji og var í spænska landsliðshópnum þegar Spánverjar unnu Heimsmeistarakeppnina í Suður Afríku í sumar.

Llorente hefur farið á kostum á tímabilinu því auk þess að skora 8 mörk í 11 leikjum í spænsku deildinni hefur hann skorað fjögur landsliðsmörk síðan í haust.

Real Madrid getur keypt upp samning Fernando Llorente fyrir 36 milljónir evra eða um 5,5 milljarða íslenskra króna en hann er með samning við Bilbao-liðið til ársins 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×