Fótbolti

Sevilla rak þjálfarann sinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Antonio Alvarez.
Antonio Alvarez.

Antonio Alvarez er fyrsta fórnarlamb tímabilsins í spænska boltanum því Sevilla hefur rekið hann sem þjálfara félagsins eftir tap gegn Hercules í deildinni. Gregorio Manzano hefur verið ráðinn í hans stað.

Alvarez var við stjórnvölinn hjá liðinu í aðeins sex mánuði. Hann náði liðinu aldrei á neitt flug og því fékk hann að fjúka.

Liðið komst ekki í Meistaradeildina eftir tap gegn Braga og slakt gengi í upphafi tímabils var svo kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×