Fótbolti

Inter vill líka fá Guardiola

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Orðrómurinn um að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, muni hætta með liðið næsta sumar verður sífellt háværari þó svo hann sé samningsbundinn Barcelona til ársins 2012.

Chelsea er sagt hafa mikinn áhuga á því að fá Guardiola til félagsins og hermt er að Roman Abramovich, eigandi Chelsea, ætli að leggja allt í sölurnar til þess að fá Guardiola.

Chelsea er ekki eina liðið sem sagt er hafa áhuga á þjálfaranum því hann er nú orðaður við Inter en Rafa Benitez, þjálfari Inter, er eins og kunnugt er valtur í sessi.

Ítalskir fjölmiðlar segja í dag að Inter hafi reynt að fá Guardiola síðasta vor þegar spurðist út að José Mourinho ætlaði sér að yfirgefa Inter fyrir Real Madrid.

Guardiola hefur því úr góðum möguleikum að velja ákveði hann að segja skilið við Barcelona næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×