Fótbolti

Messi skaut Barcelona á toppinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi og David Villa fagna í dag.
Messi og David Villa fagna í dag.

Barcelona er komið aftur á topp spænsku úrvalsdeildarinnar eftir góðan 0-2 útisigur á Real Zaragoza í dag.

Það var Argentínumaðurinn Lionel Messi sem skoraði bæði mörk Barcelona í dag. Þau komu á 42. og 66. mínútu.

Ballið var í raun búið hjá Zaragoza er liðið var marki undir og missti svo Leonardo Ponzio af velli með rautt spjald.

Barcelona er með 19 stig á toppnum en Real Madrid getur náð toppsætinu leggi það Racing Santander í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×