Fótbolti

Ancelotti: Roman vill sjá Chelsea spila svona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti.

Sálfræðistríðið fyrir síðari leik Chelsea og Inter hefur verið athyglisvert eins og alltaf þegar Jose Mourinho á í hlut. Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur komið með nokkur skot á Mourinho.

Ancelotti var ekki lengi að undirstrika sóknarboltann sem hann hefur komið með á Stamford Bridge. Chelsea skorar 2,38 mörk að meðaltali í leik undir stjórn Ancelotti en hjá Mourinho var það 1,79.

„Nokkrir hlutir hafa breyst. Leikaðferðin er aðeins öðruvísi. Við spilum sóknarbolta. Roman (Abramovich) vill sjá liðið spila svona. Ég tel að nú spili liðið eftir hans hugmyndafræði. Við viljum bæta okkur en þetta er góður leikstíll," sagði Ancelotti.

Leikur Chelsea og Inter hefst 19:45 og verður að sjálfsögðu sýndur beint á Stöð 2 Sport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×