Körfubolti

NBA: Góður sigur hjá San Antonio gegn Denver

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tap Denver fyrir San Antonio í nótt var dýrt því liðið missti forskoti í sinni deild og það gæti haft mikil áhrif á heimavallarrétt í úrslitakeppninni. Denver þurfti aðeins að vinna annan af tveimur síðustu heimaleikjum sínum til þess að tryggja sigur í sinni deild.

„Öll töp á þessum punkti tímabilsins eru dýr," sagði Chauncey Billups, leikmaður Denver.

Tapið var líka ljótt enda fékk Denver fjórar tæknivillur í leiknum og Carmelo Anthony var hent út úr húsi.

Úrslit næturinnar:

Carlotte-Detroit  99-95

Indiana-NJ Nets  115-102

Washington-Atlanta  95-105

Memphis_Philadelphia  101-120

Milwaukee-Boston  90-105

Denver-San Antonio  85-104

Sacramento-Dallas  108-126

LA Clippers-Golden State  107-104

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×