Fótbolti

Barcelona varð af tveimur mikilvægum stigum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Barca fagna marki Pedro.
Leikmenn Barca fagna marki Pedro.

Sigurhátið Barcelona í kvöld fékk ekki alveg þann endi sem vonast var til því liðið hóf nýja árið á því að gera jafntefli við Villarreal, 1-1.

Pedro Rodriguez kom Barca yfir á 7. mínútu en David Fuster jafnaði fyrir Villarreal í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat.

Barca er aðeins þrem stigum á undan Real Madrid sem á þess utan leik inni og getur því jafnað meistarana að stigum.

Valencia er síðan í þriðja sætinu eftir góðan 1-0 sigur á Espanyol þar sem Nikola Zigic skoraði sigurmarkið í lok leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×