Innlent

Aldrei fleiri í september

Aldrei hafa fleiri ferðamenn sótt Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík í septembermánuði en í nýliðnum mánuði. Í tilkynningu kemur fram að alls heimsóttu 29.170 ferðamenn upplýsingamiðstöðina.

Heimsóknum hafði fyrir það fækkað um 8,6 prósent fyrstu átta mánuði ársins. Heildarfjöldi heimsókna stefnir í að verða meiri en 300 þúsund. Takist það verður árið það annað besta hjá upplýsingamiðstöðinni frá því mælingar hófust árið 2002.- bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×