Fótbolti

Sevilla vann Barcelona í spænska bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gekk ekkert upp hjá Lionel Messi í kvöld.
Það gekk ekkert upp hjá Lionel Messi í kvöld. Mynd/AFP
Sevilla vann 2-1 sigur á Barcelona í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld. Leikurinn fór fram á Camp Nou í Barcelona en seinni leikurinn fer fram á heimavelli Sevilla í næstu viku.

Diego Capel kom Sevilla í 1-0 á 61. mínútu leiksins eftir fyrirgjöf Diego Perotti og stutta sendingu frá Renato.

Zlatan Ibrahimovic jafnaði leikinn á 74. mínútu úr skyndisókn eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

lvaro Negredo skoraði sigurmark Sevilla úr vítaspyrnu aðeins mínútu síðar eftir að Diego Capel var felldur í teignum.

Lionel Messi var í byrjunarliði Barcelona og lék í framlínunni ásamt þeim Bojan Krkic og Pedro Rodriguez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×