Fótbolti

Real Madrid á eftir Milito

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Milito var í miklu uppáhaldi hjá Mourinho er hann stýrði Inter.
Milito var í miklu uppáhaldi hjá Mourinho er hann stýrði Inter.

Svo gæti farið að framherjinn Diego Milito leiki aftur undir stjórn José Mourinho því ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Real Madrid ætli sér að gera tilboð í leikmanninn í janúar.

Real verður án framherjans Gonzalo Higuain næstu mánuði þar sem hann er meiddur og Mourinho vill því kaupa nýjan framherja sem getur keppt við Karim Benzema um framherjastöðuna.

Real hefur einnig verið orðað við Edin Dzeko hjá Wolfsburg sem og Emmanuel Adebayor, leikmann Man. City.

Milito er sagður ekki vera of kátur í herbúðum Inter undir stjórn Rafa Benitez og hefði eflaust mikinn áhuga á því að vinna með Mourinho á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×