Fótbolti

Loforð Mourinho kveikti í leikmönnum Real Madrid í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Real Madrid fagnar einu átta marka sinna í gær.
Real Madrid fagnar einu átta marka sinna í gær. Mynd/AP
Real Madrid fór á kostum í síðasta leik sínum á árinu í gær og vann þá 8-0 sigur á Levante í spænska Konungsbikarnum. José Mourinho, þjálfari Real Madrid, sagði að loforð sitt fyrir leikinn hafði kveikt í sínum mönnum en bæði Cristiano Ronaldo og Karim Benzema skoruðu þrennu í þessum stórsigri.

„Leikmennirnir mínir spurðu mig fyrir leikinn, hvort þeir fengju að sleppa við að gista á hóteli og vera frekar með fjölskyldum sínum kvöldið fyrir seinni leikinn, ef að þeir ynnu leikinn 4-0. Ég lofaði þeim að við myndum ferðast á leikdag ef að þeir myndu vinna leikinn 6-0," sagði José Mourinho í viðtali við heimasíðu Real Madrid.

„Við munum núna ferðast samdægurs en það er ekki af óvirðingu við mótherjana heldur vegna þess að það er mikilvægt fyrir Spoánverja að eyða tíma með fjölskyldum sínum," bætti Mourinho við.

„Það var frábært að enda árið með þessum hætti. Við höfum unnið 20 af 25 mótsleikjum á árinu og aðeins tapað einum. Mínir menn tóku þennan leik alvarlega og það er eina leiðin til þess að spila," sagði Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×